Vörumerki MS


Mmm… grísk jógúrt er nýtt og litríkt vörumerki þar sem silkimjúk áferð, spennandi bragðtegundir og lífleg hönnun koma saman. Mmm… er þykk, mjúk og rjómakennd grísk jógúrt þar sem bragðupplifunin er í fyrsta sæti. Nafnið Mmm… vísar í augnablikið þegar eitthvað bragðast einfaldlega svo vel að orð eru óþörf – Mmm… fylgdu hljóðinu.


Eins og aðrar mjólkurvörur eru ab-vörurnar næringarríkar og innihalda hina heilnæmu a- og b-gerla. Í einu grammi af ab-mjólk eru að minnsta kosti 500 milljón a-gerlar og 500 milljón b-gerlar. Almenningur gerir sér æ betur grein fyrir mikilvægi hollrar og næringarríkrar fæðu fyrir líkamsstarfsemina. Ab-vörur eru mikilvægur hluti af hollu mataræði og heilbrigðum lífsstíl.


































