Beint í efni
En

Grísk jógúrt

Mmm... grísk jógúrt er nýtt og litríkt vörumerki þar sem spennandi bragðtegundir og lífleg hönnun koma saman. Mmm... vísar í augnablikið þegar eitthvað er einfaldlega svo gott að við þurfum ekki mörg orð til að lýsa því.

  • KARAMELLUEPLI
  • SÚKKULAÐIFLÖGUR
  • HINDBER
  • MANGÓ OG CHILI
  • HREIN

Grísk jógúrt er í eðli sínu silkimjúk og próteinrík og Mmm… byggir á þeim eiginleikum en setur bragðupplifunina í fyrsta sæti. Útkoman er þykk, mjúk og rjómakennd jógúrt sem er tilvalin þegar löngunin kallar á eitthvað kalt, rjómakennt og virkilega gott. Allar bragðtegundir eru laktósalausar og henta því vel fólki með laktósaóþol og þá er viðbættur sykur í algjöru lágmarki.

Mmm... grísk jógúrt fæst í þremur stærðum og alls sex bragðtegundum. Í föstu vöruúrvali eru:

  • Mangó og chili (180 og 500 g)
  • Karamelluepli (180 og 500 g)
  • Hindber (180 og 500 g)
  • Súkkulaðiflögur (180 g)
  • Hrein með möndlum og fræjum í toppi (180 g)
  • Hrein (1 kg)
  • Vanilla (1 kg)

Góð spurning! Auk bragðtegunda sem verða í föstu vöruúrvali er stefnt að því að kynna eina til tvær sérútgáfur á ári. Sérútgáfurnar gefa okkur tækifæri til að leika okkur með bragð og koma fólki á óvart. Við erum með fullt af spennandi hugmyndum en viðmiðið verður alltaf það sama: Ef bragðið fær okkur ekki til að segja mmm…, þá fer það ekki lengra!

Viðbættum sykri er haldið í lágmarki í bragðbættu tegundunum og er magn viðbætts sykurs aðeins 4% af heildarmagninu. Þetta er í samræmi við kröfur Græna skráargatsins sem leyfir að hámarki 4% viðbættan sykur í bragðbættum sýrðum mjólkurvörum. Hrein Mmm… grísk jógúrt inniheldur engan viðbættan sykur.

Nafnið Mmm… vísar í augnablikið þegar eitthvað bragðast einfaldlega svo vel að orð eru óþörf – Mmm….
Litríkar umbúðir og kraftmikill myndheimur gefa vörunum sterkan og skemmtilegan karakter í kælinum, en undir lokinu er það bragðið sem ræður ríkjum.

Mmm...