Hvað er svona merkilegt við LGG+
Hver 65 ml flaska yfir 1 milljarð af LGG góðgerlum auk a- og b-gerla og heilsutrefja (ólígófrúktósa) í fitulausri mjólk. Samsetning LGG+ er með þeim hætti að samverkandi heildaráhrif gerla og náttúrulegra efna gefa hámarks árangur sé þess neytt reglubundið. LGG+ inniheldur einnig C- og D-vítamín sem stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Til að viðhalda fullum áhrifum LGG+ er mikilvægt að neyta þess daglega og ein lítil flaska er nóg fyrir fulla virkni.

LGG+ í fernu!
Fernurnar eru umhverfisvænn og hagkvæmur kostur og verða í boði samhliða flöskunum en hver ferna inniheldur 455 ml eða 7 dagskammta. Í einum skammti eru yfir 1 milljarður af LGG mjólkursýrugerlum auk a- og b-gerla og heilsutrefja (ólígófrúktósa). Samsetning LGG+ er með þeim hætti að samverkandi heildaráhrif gerla og náttúrulegra efna gefa hámarks árangur sé þess neytt daglega.

Ónæmiskerfið
Ferðalög, umgangspestir og alvarleg veikindi, óhollt mataræði, óreglulegur svefn, inntaka sýklalyfja, streita - þetta eru nokkrir þeirra þátta sem geta veikt mótstöðuafl nútímafólks.
Dagleg neysla LGG+ tryggir fulla virkni. Í LGG+ eru, auk LGG-gerla og a- og b-gerla, C- og D-vítamín sem stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Enginn mínus í LGG+
LGG+ hentar fólki á öllum aldri, börnum jafnt sem fullorðnum. Það er ekki lyf heldur matvara og ráðlagður dagskammtur 65 ml eða því sem nemur einni lítilli flösku. LGG+ er sjálfsagður hluti af heilsusamlegu mataræði.
Kvef
Kvef er líklega algengasti kvilli sem hrjáir jarðarbúa, en reikna má með að þegar 75 ára aldri er náð hafi maður um það bil 200 sinnum fengið kvef á ævinni og eytt um tveimur árum af henni í að berjast við hin hvimleiðu óþægindi sem fylgja eins og nefrennsli og hnerraköst. Yfir 200 vírusar valda kvefi og því er erfitt að mynda ónæmi gegn því og að sama skapi erfitt að finna lækningu. Tíðni kvefs lækkar þó með aldrinum, börn geta reiknað með að fá kvef að meðaltali 4-8 sinnum á ári en á efri árum er meðaltalið komið niður í eitt skipti á ári.

Heilsa okkar á stöðugt undir högg að sækja vegna alls kyns áreitis. LGG+ inniheldur LGG gerla og C- og D-vítamín sem stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og styrkja mótstöðuafl líkamans.
Vírusar
Í tveimur klínískum rannsóknum Hojsak og félaga frá 2010 koma fram ótrúleg áhrif LGG á tíðni kvefs í börnum. Í rannsóknunum voru líkurnar á að fá kvef í tilraunahópunum, en allir meðlimir þeirra fengu LGG, þrisvar sinnum minni en í samanburðarhópunum sem fengu lyfleysu. Að auki virtust einkenni vara skemur í tilraunahópunum sem þýddi að börnin voru styttri tíma frá vegna veikindanna í tilraunahópunum en í samanburðarhópunum.
Fjöldi rannsókna á virkni LGG-gerilsins
Síðan LGG-gerillinn fannst hafa fjölmargar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á virkni hans og í ritrýnda gagnagrunninum Medline er að finna yfir 300 greinar um Lactobacillus GG sem og mjólkursýrugerlana Lactobacillus acidophilus og Bifidobacterium bifidum sem er reyndar einnig að finna í ab-vörum.