Árið 2017 varð Mjólkursamsalan einn fyrsti mjólkurvöruframleiðandi í heimi til þess að skipta út öllum mjólkurfernum sínum fyrir nýjar, umhverfisvænni fernur. Þær fernur bera 66% minna kolefnisfótspor en áður og eru umhverfisvænustu mjólkurfernur sem völ er á. Samhliða nýju umbúðunum var settur aukinn kraftur í að hvetja neytendur til endurvinnslu en til að einfalda sorpflokkun má tappinn fara með fernunni beint í endurvinnslutunnuna.
MS hefur tekið mörg skref til þess að draga úr plasti í umbúðum. Fyrir nokkrum árum voru rörin fjarlægð af G-mjólkinni, öllum plastdósum undir drykki var skipt út fyrir pappafernur og rörum og skeiðum úr plasti var skipt út fyrir pappa. Nú hefur eitt skref til viðbótar verið tekið og plastlok með skeiðum verið tekin af einskammta skyrdósum og fólk hvatt til að nota fjölnota skeiðar. Hvert skref í rétta átt skiptir máli og hafa neytendur tekið þessum breytingum vel.


