Hleðsla er íslenskur próteindrykkur sem inniheldur hágæða prótein úr íslenskri mjólk. Hleðsla hentar eftir hvers kyns hreyfingu, sem millimál í amstri dagsins og er góður kostur fyrir fólk sem vill auka próteininntöku sína með einföldum hætti. Hleðsla er fyrir okkur öll.
Settu þig í hleðslu - með Hleðslu!

Hleðsla próteinkaffi snýr aftur
Kaffiþyrstir Hleðsluunnendur geta tekið gleði sína á ný því Hleðsla próteinkaffi er á leiðinni aftur í verslanir og nú í 250 ml umbúðum. Hleðsla próteinkaffi er próteinríkur kaffidrykkur úr íslenskri mjólk og kaldbrugguðu kaffi. Kaffið er malað úr 100% Arabica baunum frá Eþíópíu og inniheldur ein ferna 22 g prótein og 70 mg koffín. Saman mynda kaffið og próteinrík íslensk mjólkin silkimjúka og bragðmilda kaffiblöndu sem kemur skemmtilega á óvart.

Hleðsla próteinskyr
Við erum einstaklega spennt að færa landsmönnum snemmbúna jólagjöf frá Hleðslu en í einni skvísu af Hleðslu próteinskyri eru 20 g af hágæða íslenskum mjólkurpróteinum og þar af eru 8 g mysuprótein. Skyrið er silkimjúkt, fitu- og laktósalaust og fer því vel í maga. Að auki inniheldur próteinskyrið allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar, þar á meðal greinóttu amínósýrurnar BCAA og ekki skemmir fyrir að geta boðið upp á þessa nýjung í tveimur ólíkum og einstaklega góðum bragðtegundum.

Hleðsla með jarðarberjum og vanillu
Gaman er að segja frá því að fylgjendur Hleðslu á samfélagsmiðlum tóku þátt í vali á þessari bragðtegund. Jarðarber og vanilla voru efst á óskalista þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun okkar á nýrri bragðtegund og verður því spennandi að fylgjast með viðtökunum. Til viðbótar höfum við nú í fyrsta sinn bætt trefjum við drykkinn enda er fólk sífellt að leita leiða til að bæta trefjum við mataræði sitt.

Hleðsla með karamellubragði
Hleðsla með karamellubragði kom á markað í ársbyrjun 2023 og er einstaklega gaman að segja frá því að íslenskt íþróttafólk tók þátt í valinu á nýju bragðtegundinni. Hleðslan er bragðgóð og rík af næringarefnum. Hún er jafnframt laktósalaus og inniheldur ein ferna 22 g af hágæða próteinum úr íslenskri mjólk.


Ísköld eða flóuð út í kaffi

Hleðsla í 1l fernu
Hleðsla í 1l fernu hentar sérstaklega vel heima við hvort sem þú kýst Hleðsluna eina sér, út í kaffi, boost og hafragraut, með uppáhalds morgunkorninu þínu eða hverju því sem fólki dettur í hug.


