KEA skyr fæst í fjölmörgum bragðtegundum svo að auðvelt er fyrir neytendur finna bragð við sitt hæfi.
KEA skyr er framleitt hjá MS Akureyri.

KEA skyr með hindberja panna cotta
Nú er komin á markað ný og spennandi sérútgáfa af KEA skyri sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma. Nýtt KEA skyr með hindberjum og panna cotta er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt, laktósalaust og einstaklega bragðgott. Sérútgáfurnar okkar vekja alltaf mikla lukku enda Íslendingar upp til hópa nýjungagjarnir og miklir skyrunnendur og höfum við lagt mikla áherslu á að setja reglulega á markað nýjar og spennandi bragðtegundir.

Leeeengra bragð og margar leiðir til að njóta
Hægt er að velja sígilda og sívinsæla bragðið sem allir þekkja og allir elska, bæði eitt og sér eða í bland við ávexti og fleira í hollri hræru.
Kolvetnaskert skyr býður uppá spennandi bragðtegundir fyrir alla sem vilja minna af kolvetnum án þess að gefa neinn afslátt af góðu bragði.

Próteinríkt, laktósalaust og ljúffengt
Gríptu þitt uppáhalds skyr í næstu verslun. Frábær næring og fjölbreytt úrval.
