Beint í efni
En

Úrslit í teiknisamkeppni 4. bekkjar

Nú liggja úrslitin fyrir í árlegri teiknisamkeppni grunnskólanema sem haldin var í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn síðastliðið haust. Í ár bárust rúmlega 1.300 teikningar frá um 70 skólum um allt land og tók Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í fyrsta sinn þátt í vali á verðlaunamyndum í keppninni.

Sjá nánar

Kotasæla sem bragð er að

Við kynnum til leiks tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu sem taka hversdagsmatinn upp á næsta stig. Kotasæla með chili sriracha færir fólki smá krydd í tilveruna og kitlar bragðlaukana með bragðmiklu en ekki yfirgnæfandi bragði. Kotasæla með hvítlauk og pipar er mildari en sú fyrri en samt full af karakter, klassísk og bragðgóð með ljúfum hvítlaukskeim og örlitlum pipar.

Sjá nánar

Páskavörur MS

Nú styttist í páskana og gaman að segja frá því að páskaeftirréttirnir frá MS eru komnir í sölu. Páskajógúrt og páskaengjaþykkni innihalda mjúka og bragðgóða jógúrt með stökkum kornkúlum og fleira góðgæti. Tilvalinn kostur sem sparimorgunverður, gómsætur millibiti eða ljúffengur eftirréttur. Hvernig væri að gera sér dagamun og leyfa sér smá?

Sjá nánar

Leeeengra bragð og margar leiðir til að njóta

KEA skyr fæst í fjölmörgum bragðtegundum svo að auðvelt er fyrir neytendur finna bragð við sitt hæfi.

Sjá nánar

Vinsælar vörur

Þitt er valið

Öll viljum við borða hollan og góðan mat. MS býður upp á breitt úrval af næringarríkum mjólkurvörum, allt frá smjöri og ostum yfir í skyrdrykki og jógúrt. Í dag er svo komið að neytendur hafa fjölbreytt val í öllum helstu vöruflokkum MS og höfum við unnið markvisst að því síðustu ár að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum okkar. Rúmlega 92% af allri mjólk sem kemur til MS fer í hreinar afurðir eða vörur án viðbætts sykurs.

Við erum MS

Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður og óhætt að segja að ein helsta auðlind MS sé mannauðurinn. Hjá okkur starfa um 450 starfsmenn um land allt sem mynda marga ólíka en samheldna hópa sem eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli reynslu, færni og þekkingu í sínum störfum.
Meginmarkmið okkar er ánægt starfsfólk sem hefur skýra ábyrgð og góða sérþekkingu á sínu sviði sem saman vinnur sem ein liðsheild að markmiðum fyrirtækisins.

Í góðri sátt við náttúru og samfélag 

Mjólkursamsalan einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Við leitumst við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggjum ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.

Til að ná sem bestum árangri í umgengni við umhverfi og lífríki, leggur MS megináherslu á eftirtalda þætti sem tengjast umhverfisvernd með beinum hætti: loftlagsmál, vatnsverndar- og frárennslismál og umbúða-, aðfanga- og úrgangsmál.