Beint í efni
En

Jólasveinarnir eru mættir á jolamjolk.is

Jólastemningin er farin að láta á sér kræla og nú er vefsíðan okkar jolamjolk.is komin í jólabúninginn! Þar má finna fjölbreytt og skemmtilegt efni fyrir alla fjölskylduna þar sem íslensku jólasveinarnir eru að sjálfsögðu í aðalhlutverki.

Vefsíðan nýtur mikilla vinsælda í aðdraganda hátíðanna ár hvert og nú hafa fjölbreytt verkefni og skemmtilegir leikir bæst í safnið sem ættu að stytta biðina eftir jólunum hjá yngstu kynslóðinni.

Á síðunni má einnig finna ýmsan fróðleik um íslensku jólasveinana, fylgjast með því hvenær þeir koma til byggða, prenta út jólasveinamyndir til að lita, hlusta á jólalög og sækja innblástur í girnilegar jólauppskriftir.

Við hvetjum alla til að kíkja í heimsókn á jolamjolk.is, njóta aðventunnar og eiga skemmtilegar stundir með íslensku jólasveinunum.

Gleðilega jólamjólk!