Umbúðir utan um Smjör, Smjörva og Léttan Smjörva hafa nú tekið breytingum til hins betra og eru bæði sterkari og einfaldari í flokkun en áður.
Eldri umbúðir voru samsettar úr þunnu plasti og pappír en nýju umbúðirnar eru eingöngu úr plasti. Þær fara því beint í plastflokkun að notkun lokinni auk þess sem þær eru mun sterkari og síður hætt við að þær rifni við notkun, eins og stundum vildi gerast með eldri umbúðirnar.
Hér er um litla en jákvæða breytingu að ræða sem gerir daglega notkun þægilegri og flokkun einfaldari og munu nýju umbúðirnar taka við af þeim eldri á næstu misserum.
