Huppa frá Kluftum er án efa ein frægasta kýr Íslandssögunnar og talin hafa haft meiri áhrif á íslenska nautgriparækt en nokkur önnur kýr. Huppa fæddist 3. nóvember 1926 á bænum Kluftum í Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Hún varð 17 ára gömul, sem þótti óvenjulega hár aldur fyrir mjólkurkú. Huppa var brandhuppótt, rauð, svört og hvít að lit.
Huppa þótti afburðagripur, bæði vegna mjólkurlagni og góðra erfðaeiginleika. Afkomendur hennar reyndust sérstaklega vel til kynbóta og urðu undirstaða svonefnds Kluftakyns. Synir hennar, einkum Máni, Huppur og Glæsir, voru mikið notaðir sem kynbótanaut. Árið 1940 sóttu Mývetningar nautkálf undan Huppu suður til Reykjavíkur og fluttu norður, sem stuðlaði að útbreiðslu kynsins. Síðar jókst útbreiðslan enn frekar með tilkomu tæknifrjóvgana.
Áhrif Huppu urðu svo víðtæk að talið er að stór hluti íslenska kúastofnsins eigi ættir sínar að rekja til hennar. Hún skipar því einstakan sess í sögu íslensks landbúnaðar. Um uppruna Huppu spunnust jafnvel þjóðsögur og var því haldið fram að í ætt hennar væri naut úr hulduheimum. Til heiðurs henni var skýrsluhaldskerfi íslenskra kúabænda nefnt Huppa.
Í tilefni 100 ára afmælis Huppu verður haldið málþing á Flúðum þann 3. nóvember 2026 og gefin út vegleg bók um Huppu og áhrif hennar á ræktun íslenska kúastofnsins.
Myndin sem fylgir fréttinni og er jafnframt á bókarkápunni er málverk eftir Halldór Pétursson listmálara sem málað var í tilefni af hálfrar aldar afmæli Huppu að tilstuðlan Búnaðarfélags Íslands.

