Frá árinu 1994 hefur Mjólkursamsalan lagt sitt af mörkum til að efla og varðveita íslenska tungu í samstarfi við Íslenska málnefnd. Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, viljum við minna á mikilvægi þess að rækta tungumálið og halda því lifandi fyrir komandi kynslóðir.
Hvort sem við höfum talað íslensku frá blautu barnsbeini eða lært hana síðar á ævinni er ræktun tungumálsins ævilangt verkefni. Tungumálið tengir okkur saman, óháð uppruna, og er lykillinn að góðum samskiptum og gagnkvæmum skilningi.
Árið 1994 lét Mjólkursamsalan framleiða sérstaka sjónvarpsauglýsingu til að vekja athygli á mikilvægi þess að varðveita íslenska tungu. Í auglýsingunni flutti Alexandra Gunnlaugsdóttir ljóð sem Þórarinn Eldjárn samdi sérstaklega fyrir Mjólkursamsöluna í tilefni af samstarfinu við Íslenska málnefnd.
Ljóðið er ort við þekkt lag eftir Atla Heimi Sveinsson og hefur síðan þá skipað sérstakan sess á degi íslenskrar tungu. Íslenskuljóðið er meðal annars sungið í fjölmörgum skólum víða um land í tilefni dagsins.
Íslenskuljóðið
Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var,
og hún á orð sem geyma gleði og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.
Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú,
það gerir enginn – nema ég og þú.
Íslenskan er mál okkar allra og það er í okkar höndum að halda henni lifandi og leyfa henni að þróast og vaxa með okkur.
Mjólkursamsalan óskar landsmönnum öllum til hamingju með dag íslenskrar tungu!
