Okkur í MS er umhugað um samfélagið og leggjum við ríka áherslu á að styðja við ýmis góðgerðarmál allt árið um kring. Í aðdraganda jólanna hefur MS um langt árabil veitt hjálparsamtökum stuðning og nú hefur 3,5 milljónum króna verið úthlutað í formi vöruinneigna til átta félaga.
Styrki hljóta að þessu sinni: Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og Matargjafir Akureyri.
Með þessari úthlutun vill MS leggja sitt af mörkum til að styðja hinn stóra hóp fólks sem leitar aðstoðar í formi matarúthlutunar fyrir hátíðarnar, en líkt og undanfarin ár er þörfin mikil og er það einlæg von okkar að styrkirnir nýtist þeim sem þurfa vel.
Á sama tíma notum við tækifærið og færum stjórnendum og sjálfboðaliðum hjálparsamtakanna sérstakar þakkir fyrir óeigingjarnt og verðugt starf í þágu skjólstæðinga þeirra.
