Beint í efni
En

Mmm... grísk jógúrt sem gleður augu og bragðlauka 

Mjólkursamsalan kynnir Mmm… gríska jógúrt, nýtt og litríkt vörumerki þar sem silkimjúk áferð, spennandi bragðtegundir og lífleg hönnun koma saman. Mmm… er þykk, mjúk og rjómakennd grísk jógúrt þar sem bragðupplifunin er í fyrsta sæti.

Sex bragðtegundir verða í föstu vöruúrvali: hrein með möndlum og fræjum í toppi, hindber, karamelluepli, mangó og chili, súkkulaðiflögur og vanilla. Viðbættum sykri er haldið í algjöru lágmarki, eða innan við 4%, og uppfylla vörurnar því kröfur norræna Skráargatsins.

Nafnið Mmm… vísar í augnablikið þegar eitthvað bragðast einfaldlega svo vel að orð eru óþörf – Mmm… fylgdu hljóðinu. Litríkar umbúðir og kraftmikill myndheimur gefa vörunum sterkan og skemmtilegan karakter í kælinum, en undir lokinu er það bragðið sem ræður ríkjum.

Auk fasta vöruúrvalsins er stefnt að því að kynna eina til tvær sérútgáfur á ári þar sem leikið verður með nýjar og óvæntar bragðsamsetningar. Mmm… er því vörumerki sem mun halda áfram að þróast og koma á óvart.