Beint í efni
En

Ítölsk hefð - íslensk matargerð

Ferskur rjómakenndur mozzarella er framleiddur í Skagafirðinum úr hreinni íslenskri kúamjólk. Framleiðsluhefðin á rætur að rekja til Ítalíu og með góðri hjálp frá ítölskum ostameisturum og nýjustu tækni getum við boðið upp á íslenskan mozzarella sem ostaunnendur og matgæðingar landsins ættu ekki að láta framhjá sér fara.

Galdraðu fram ítalska veislu

Það er fátt betra en að njóta góðra stunda saman. Góður matur, góðir ostar, góðir vinir. Ísland og Ítalía dansa saman í ferskum, rjómakenndum mozzarella sem færir ítalska stemmningu alla leið heim.

Tilvalinn í matargerðina

Mozzarella er tilvalinn í matargerð. Hann er ljúffengur með salati eða borinn fram sem smáréttur með basilíku og tómötum, á pizzur og snittur, í pasta og ofnrétti. Þetta er skemmtilegur bragðmildur ostur sem smellpassar með svo mörgu. Prófaðu þig áfram og njóttu ítalskra hefða í íslenskum mozzarella.

Spagettí með burrata

Spagettí er í uppáhaldi á mörgum heimilum en hér erum við búin að færa sígildan rétt í sannkallaðan sparibúning og ljúffengar burrata kúlurnar gera góðan rétt enn betri. Mikil vinna fylgir framleiðslu á þessum dásamlega osti og óhætt að segja að hver einasta kúla sé sannkallað listaverk. Nú er tími til að njóta!

Bakað smælki með pestó og mozzarella perlum

Kartöflur eru klassískt meðlæti með hvers kyns mat en ef þú hefur ekki prófað að bera þær fram með mozzarella perlum skorum við á þig að prófa!

Mozzarella smellpassar ofan á föstudagspizzuna.
Þú færð innblástur á gottimatinn.is

Tengdar vörur