Hagnýt ráð um SMJÖR
Smjör er mikilvægasta fitan við bakstur því það gefur bæði góða fyllingu og gæði. Ef SMJÖR er í uppskriftinni skiptir miklu að farið sé eftir því ef árangur á að nást.
Smjörbráð
- Bræðið smjörið við vægan hita, þannig að það bráðni sem hægast. Takið það af hinum áður en það verður tært, annars er hætta á að bragðgæðin rýrni.
Smjör til steikingar
- Aðeins smjör gefur hinn rétta gyllta brúna lit og góða bragð sem einkennir steiktan mat á pönnu.
- Setjið ávallt smjör á kalda pönnu. Látið það bráðna og bíðið eftir að froðan hjaðni áður en þið setjið matinn á pönnuna
- Ef smjörið er ekki nægilega heitt brúnast maturinn ekki almennilega. Það þarf að vera það heitt að maturinn snöggsteikist, verði gylltur og stökkur.
- Maturinn sem á að steikja þarf að vera þurr, annars brúnast hann ekki. Gott er að velta honum upp úr hveiti áður en hann er steiktur.
- Ekki á að þerra smjörsteiktan mat á pappír eftir steikingu heldur á hann að haldast rakur og vera með smjörbragði.
- Smjör brennur auðveldlega við mikinn hita, þannig að gott er að hita saman 2/3 hluta af smjöri og 1/3 hluta olíu til að steikja úr, í því hlutfalli ættu bragðgæðin ekki að tapast.
Geymsla á smjöri
- Smjör geymist vel í kæli í allt að 6 mánuði frá pökkunardegi og 9-12 mánuði í frysti án þess að tapa bragðgæðum og eiginleikum.
Skírt smjör (clarified butter)
- Það nefnist skírt smjör þegar fitan er skilin frá en við það verður smjörið hitaþolnara en venjulegt smjör og hentar vel til steikingar.


