Ekki flækja hlutina þegar þú þarft þess ekki og veldu þér einfaldan og bragðgóðan eftirrétt þegar þú vilt gera vel við þig og þína.

Mandarínuostakakan mætir í nýjum búningi
Gamla góða mandarínuostakakan hefur fengið ferska yfirhalningu og mætir nú til leiks í nýjum búningi með bragðmeiri botni, litríkum umbúðum og nýrri stærð. Kakan samanstendur af nýjum og bragðmiklum kexbotni, ómótstæðilegri ostakökufyllingu og frískandi mandarínuþekju sem setur punktinn yfir i-ið. Útkoman er ljúffeng blanda af sætu, ferskleika og góðu biti í botninum.

Engjaþykkni með Nóa smá Kroppi
Eftir ótal fyrirspurnir og mikla eftirvæntingu er gaman að segja frá því að Engjaþykkni með Nóa smá Kroppi snýr aftur. Þegar varan kom fyrst á markað sló hún rækilega í gegn og seldist upp á mettíma. Síðan þá hafa óskirnar um endurkomu hennar reglulega borist til bæði MS og Nóa Síríus og nú er biðin á enda.

Mokka ostakaka sem bráðnar í munni
Mokka ostakaka er nýjasta viðbótin í vörulínunni en þar mætir bragðmikill kexbotn silkimjúkri og ómótstæðilegri ostakökufyllingu með mokkabragði og nokkuð víst að þessi mun slá í gegn í næsta saumaklúbbi, matarboði eða afmæli.
Notaleg samvera toppuð með úrvali af bragðgóðum eftirréttum
Öll viljum við borða hollan og góðan mat. Hjá MS hefur þú val um hreinar, bragðbættar eða kolvetnaskertar sýrðar mjólkurafurðir. En þegar þú vilt gera vel við þig og þína þá býður þú upp á eitthvað gott úr eftirréttalínu MS.


Ostakökur
Ef það er eitthvað sem er betra en ein Bláberjaostakaka, þá eru það tvær! Stundum þurfa eftirréttir ekki að vera mikið flóknari en það.
Það sem þú þarft:
Tvær Bláberjaostakökur frá MS
Askja af ferskum bláberjum
Flórsykur
Aðferð:
Gott er að byrja á því að setja Bláberjaostakökurnar í frysti. Þetta hjálpar til við að halda fallegri lögun þegar þeim er staflað upp. Þegar þær eru komnar á disk þarf einungis að dreifa fersku bláberjunum yfir toppinn og sigta svo ögn af flórsykri yfir. Auðvitað má svo taka skreytingarnar enn lengra ef ímyndunaraflið leyfir.
Einfalt og ljúffengt.
