Léttmál er vörulína þar sem silkimjúk og próteinrík grísk jógúrt er í aðalhlutverki. Léttmál er próteinríkt, handhægt og einstaklega bragðgott og hentar sérstaklega vel sem millimál enda auðvelt að grípa með sér hvar og hvenær sem er. Léttmál er fáanlegt í nokkrum mismunandi bragðtegundum og ættu flestir að finna að finna eitthvað við sitt hæfi í línunni! Áhersla er á að halda sykri í lágmarki í línunni og innihalda vörurnar að hámarki 4% viðbættan sykur.
Grísk jógúrt með karamellueplum
Gríska jógúrtin í Léttmálslínu MS hefur notið mikilla vinsælda frá því hún kom fyrst á markað fyrir tæpum 10 árum síðan og höfum við nú loksins svarað kalli viðskiptavina okkar og bjóðum nú upp á spennandi sérútgáfu með karamellueplum. Hér er á ferðinni frábært millimál sem inniheldur lítinn sykur og er allt í senn próteinríkt, silkimjúkt og einstaklega bragðgott. Grísk jógúrt með karamellueplum hentar ekki síður sem morgunverður fyrir fólk á hraðferð út í daginn eða létt og ljúffengt kvöldsnarl og ættu unnendur grískrar jógúrtar ekki að láta þessa bragðveislu fram hjá sér fara.
Léttmál með möndlum, döðlum og fræjum í toppi
Hrein grísk jógúrt með hollum og stökkum toppi. Frábær valkostur fyrir þá sem kjósa smá bit með grísku jógúrtinni sinni. Grísk jógúrt er próteinrík og góð uppspretta kalks. Möndlur eru trefjaríkar og innihalda mikið af einómettuðum fitusýrum. Döðlur eru ríkar af trefjum og mörgum steinefnum. Sólblómafræ eru auðug af fjölómettuðum fitusýrum og próteinrík og þá eru graskersfræ rík af sinki, járni og próteini.
Léttmál með með eplum, perum, kínóa og korni
Léttmál með eplum, perum, kínóa og korni er frábær kostur, hvort sem er í morgunmat og millimál. Gríska jógúrtin er hrein og bragðgóð með bragðgóðum bitum sem gefa jógúrtinni nýtt og spennandi bragð.
Léttmál með jarðarberjum
Léttmál með jarðarberjum í botni er létt og bragðgóð hrein grísk jógúrt með bragðgóðum jarðarberjum og aðeins 4% viðbættum sykri. Léttmál er frábær á ferðinni - létt að grípa með sér!