Ostóber er tími til að njóta osta. Gæddu þér á þínum uppáhaldsostum, smakkaðu nýja og prófaðu spennandi uppskriftir þar sem íslenskir ostar koma við sögu. Í ár kynnum við til leiks nokkrar spennandi nýjungar og fyrst ber að nefna Mascarpone með súkkulaðibragði sem er væntanlegur á markað um miðjan október, næstur er sjálfur Óðals Búri í sneiðum og þá koma Eldur og Marmari úr Ostakjallaranum aftur á markað vegna mikillar eftirspurnar. Nú og ef Sveita kúmenostur hefur farið framhjá ykkur er Ostóber án efa mánuðurinn til að gæða sér á honum. Ostarnir eru einstakir með sín sérkenni og því skemmtileg viðbót við aðra íslenska sælkeraosta og njóta sín vel á ostabakka eða einir sér með góðum drykk og meðlæti.
Kynntu þér úrvalið, veldu einn - mögulega tvo, og njóttu osta allan októbermánuð.

Þá geta ostaunnendur enn fremur fundið ýmislegt áhugavert að smakka þegar efnt verður til sex rétta ostaveislu ásamt vínpörun þann 30. september á Sjálandi. Á viðburðinum verða hátt í 20 íslenskir ostar bornir fram á ólíkan hátt og paraðir við sérvalda drykki. Þar verða bæði kunnuglegir ostar, spennandi nýjungar og ostar sem hafa fengið að þroskast sérstaklega í Ostakjallara MS. Sala á viðburðinn er í fullum gangi á Dineout.
