Beint í efni
En

Yfir 1.300 teikningar frá grunnskólanemum bárust í árlega teiknisamkeppni

Mikil sköpunargleði einkenndi árlega teiknisamkeppni grunnskólanema sem haldin var í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn síðastliðið haust. Nú liggja úrslitin fyrir, en keppnin er opin öllum nemendum í 4. bekk og hefur í gegnum árin fest sig í sessi sem vinsæll og skapandi liður í skólastarfi víða um land.

Í ár bárust rúmlega 1.300 teikningar frá um 70 skólum um allt land. Fjölbreytileikinn var mikill og hugmyndaflugið óþrjótandi, sem gerði verkefni dómnefndar bæði skemmtilegt og krefjandi. Að lokum voru tíu myndir valdar til verðlauna, en hver þeirra hlýtur 40.000 króna peningagjöf frá MS sem rennur í bekkjarsjóð teiknaranna.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tók í fyrsta sinn þátt í vali á verðlaunamyndum í keppninni og hafði mikla ánægju af því hve mikinn metnað og sköpunargáfu væri að finna í hverri einustu mynd.

„Við hlökkum alltaf til að sjá myndirnar sem berast á hverju ári,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS. „Það er ótrúlega gaman að sjá hversu hugmyndarík og fjölbreytt verkin eru og krakkarnir koma okkur alltaf á óvart með nýjum og skemmtilegum útfærslum.“

Vinningshafar í teiknisamkeppninni skólaárið 2025-2026 eru:

  • Alma Björk Þorgeirsdóttir – Sæmundarskóla
  • Aníta Björk Styrmisdóttir, Elísabet Lilja Elmarsdóttir og Hekla Rannveig Vídó Hlynsdóttir – Hamarsskóla Vestmanneyjum
  • Ariana Ospino Baurinaile og Pétur Bjarnason – Hamarsskóla Vestmannaeyjum
  • Azra Tiras – Selásskóla
  • Bjartey Ólafsdóttir – Setbergsskóla
  • Hlynur Darri Guðnason – Rimaskóla
  • Karen Hannesdóttir – Síðuskóla
  • Leon Manuel F. de Oliveira – Hólabrekkuskóla
  • Ronja Rut Eggertsdóttir – Sæmundarskóla
  • Sóley Georgsdóttir – Grunnskólanum í Stykkishólmi

Skólastjórnendum hefur þegar verið tilkynnt um úrslitin og gleðitíðindin borist verðlaunahöfunum. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju og viljum um leið þakka öllum þeim fjölmörgu nemendum sem tóku þátt og sendu inn sínar frábæru myndir í keppnina í ár.

Meðfylgjandi er mynd af dómnefndinni með vinningsmyndir ársins, en allar myndirnar má sjá hér fyrir neðan og á vef verkefnisins, ms.is/teiknisamkeppni

Guðlín Ósk Bragadóttir, Inga Sæland og Gréta Björg Jakobsdóttir með verðlaunamyndirnar.

  • Alma Björk Þorgeirsdóttir – Sæmundarskóla
  • Aníta Björk Styrmisdóttir, Elísabet Lilja Elmarsdóttir og Hekla Rannveig Vídó Hlynsdóttir – Hamarsskóla Vestmanneyjum
  • Ariana Ospino Baurinaile og Pétur Bjarnason – Hamarsskóla Vestmannaeyjum
  • Azra Tiras – Selásskóla
  • Bjartey Ólafsdóttir – Setbergsskóla
  • Hlynur Darri Guðnason – Rimaskóla
  • Karen Hannesdóttir – Síðuskóla
  • Leon Manuel F. de Oliveira – Hólabrekkuskóla
  • Ronja Rut Eggertsdóttir – Sæmundarskóla
  • Sóley Georgsdóttir – Grunnskólanum í Stykkishólmi