Beint í efni
En

Sólmyrkva fagnað með nýju Ísey skyri

Ísey skyr heldur áfram að gleðja skyrunnendur landsins og sækir nú innblástur í væntanlegan sólmyrkva á Íslandi sem beðið er með mikilli eftirvæntingu. Almyrkvi á sólu er sjaldgæf sjón og einstök upplifun og sameinar nýtt Ísey skyr því íslenska matarhefð og spennandi bragðupplifun.

Við vildum gera eitthvað sem fangar bæði íslenska matarhefð og þá dulúð sem fylgir sólmyrkva og úr varð þessi spennandi bragðupplifun. Sólmyrkvaskyrið er með einstöku kexbragði sem margir þekkja sem cookies and cream og óvenjulegur litur skyrsins skapar sjónræna upplifun á sama tíma.

Sólmyrkvaskyrið er framleitt í takmörkuðu magni fram að sólmyrkvanum og er ætlað að höfða bæði til Íslendinga og ferðamanna sem vilja smakka eitthvað einstakt frá Íslandi. Umbúðirnar eru hannaðar sérstaklega með sólmyrkvaþema í huga þar sem gylltur hringur sólarmyrkvans umvefur Ísey skyr og ætti dósin því ekki að fara framhjá neinum.

Nældu þér í nýtt Sólmyrkvaskyr sem kemur í verslanir um miðjan júlí.