
MS í liði með Janusi heilsueflingu
MS og Janus heilsuefling hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning sín á milli til næstu þriggja ára og er það von fulltrúa beggja aðila að með samstarfinu megi efla og styrkja heilsu þjóðarinnar. Janus heilsuefling er ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í sérsniðinni heilsueflingu fyrir 60 ára með það að markmiði að auka vöðvastyrk, bæta úthald, lífsgæði og heilsu með hækkandi aldri. Starfsfólk Janusar veitir fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf víðsegar um landið fyrir þennan aldurshóp og leggur mikla áherslu á holla og góða næringu skjólstæðinga sinna. Hleðsla og Næring+ eru meðal þeirra vara sem mælt er sérstaklega með fyrir þennan hóp, enda um prótein- og næringarríkar vörur að ræða sem henta hópnum vel.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Björn S. Gunnarsson vöruþróunarstjóra MS og Janus Guðlaugsson frumkvöðul í heilsueflingu eldri borgara eftir undirritun samstarfssamningins og er það von okkar í MS að styrkurinn muni efla og auka lífsgæði fólks um land allt.