
Hleðsla próteinkaffi snýr aftur
Kaffiþyrstir Hleðsluunnendur geta tekið gleði sína á ný því Hleðsla próteinkaffi er á leiðinni aftur í verslanir og nú í 250 ml umbúðum. Hleðsla próteinkaffi er próteinríkur kaffidrykkur úr íslenskri mjólk og kaldbrugguðu kaffi. Kaffið er malað úr 100% Arabica baunum frá Eþíópíu og inniheldur ein ferna 22 g prótein og 70 mg koffín. Saman mynda kaffið og próteinrík íslensk mjólkin silkimjúka og bragðmilda kaffiblöndu sem kemur skemmtilega á óvart.
Við höldum áfram að færa Hleðsluunnendum okkar nýjungar og eftir frábærar viðtökur á Hleðslu með jarðarberjum og vanillu og nú síðast Hleðslu próteinskyri, er afar ánægjulegt að geta boðið upp á Hleðslu með kaffi á ný. Hleðsla próteinkaffi inniheldur ekki kaffibragðefni, heldur alvöru kaldbruggað kaffi (e. cold brew coffee) og koffín sem samsvarar tæplega einum kaffibolla.
Hér er á ferðinni frábær kaffi- og próteindrykkur sem enginn Hleðslu- eða kaffiunnandi má missa af.