Beint í efni
En

Hækkun á lágmarksverði mjólkur til bænda

Í framhaldi af ákvörðun Verðlagsnefndar búvara um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurvara, sem birt er á vefsíðu Atvinnuvegaráðuneytisins, tekur nýr verðlisti Mjólkursamsölunnar gildi frá 11. september 2026.

Eftirfarandi verðbreytingar taka gildi þann 11. sept.

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 1,39% úr 146,17 kr./ltr í 148,20 kr./ltr.
  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 1,42%.

Nýr verðlisti hefur verið birtur og tekur gildi 11. sept.

Nánari upplýsingar úr tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands má lesa hér fyrir neðan.

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í mars 2026. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 1,39% frá mars til júní 2026.

Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í mars 2026 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,45%.

Breytingar á lágmarksverði og heildsöluverði mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá mars til júní 2026 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,8%. Helstu áhrifaþættir til verðhækkunar samkvæmt reiknilíkönum eru gjaldaliðir launa, fjármagnskostnaðar, fóðurs, umbúða, íblöndunarefna og orkunotkunar.

Stjórnarráðið - Hækkun lágmarksverðs mjólkur