Beint í efni
En

Hækkun á lágmarksverði mjólkur til bænda

Í framhaldi af ákvörðun Verðlagsnefndar búvara um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurvara, sem birt er á vefsíðu Atvinnuvegaráðuneytisins, tekur nýr verðlisti Mjólkursamsölunnar gildi frá 11. maí næstkomandi.

Eftirfarandi verðbreytingar taka gildi þann 11. maí 2026.

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 2,47% úr 142,65 kr./ltr í 146,17 kr./ltr.
  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 2,19%.

Nýr verðlisti hefur verið birtur og tekur gildi 11. maí

Nánari upplýsingar úr tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands má lesa hér fyrir neðan.

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í desember 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 2,47% frá desember 2025 til mars 2026.

Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í desember 2025 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,89%.

Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá desember 2025 til mars 2026 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,9%. Í mars mánuði er gert ráð fyrir áburðarkaupum bænda sem skýrir að ákveðnu leyti hækkun verðlagsgrundvallar umfram almennar verðlagsbreytingar.

Stjórnarráðið | Hækkun lágmarksverðs mjólkur