
Hækkun á lágmarksverði mjólkur til bænda
Í framhaldi af ákvörðun Verðlagsnefndar búvara um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurvara, sem birt er á vefsíðu Atvinnuvegaráðuneytisins, tekur nýr verðlisti Mjólkursamsölunnar gildi frá 16. febrúar næstkomandi.
Eftirfarandi verðbreyting tók gildi 5. febrúar 2026:
- Lágmarksverð 1. fl. mjólkur til bænda hækkar um 0,89% úr 141,39 kr./ltr í 142,65 kr./ltr.
Listaverð mjólkurvara MS hækkar af þessum sökum um 0,89-1,5%
Nýr verðlisti hefur verið birtur og tekur gildi 16. febrúar
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðast var verðlagt á heildsölustigi í september, byggt á verðlagi í júní.
Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá júní til desember 2025 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,42%.