Beint í efni
En

AB jógúrt í skvísum

MS kynnir með stolti nýja vörulínu undir ab-vörumerkinu en um er að ræða ab-jógúrt í skvísum sem við hlökkum til að kynna fyrir landsmönnum.

Líkt og ab-mjólk inniheldur ab-jógúrtin góðu gerlana Lactobacillus acidophilus (a) og Bifidobacerium bifidum (b) sem gera óæskilegum gerlum í meltingarvegi erfitt uppdráttar og halda áfram mikilvægri starfsemi sinni í þörmunum.

Ab-jógúrtin er silkimjúk, laktósalaus og smakkast einstaklega vel en þrjár bragðtegundir verða í boði til að byrja með: vanillu, vatnsmelónu og ferskju, en þær eru hver annarri betri. Ab-jógúrtin er handhægur og hollur kostur fyrir fólk á öllum aldri og hentar vel sem nærandi nesti eða millimál í skóla, íþróttum og vinnu.