Mjólkursamsalan hefur frá árinu 1994 beitt sér fyrir eflingu móðurmálsins með fjölbreyttum leiðum og hafa stærstu og sýnilegustu verkefni okkar verið sérstök íslenskuátök á mjólkurfernum MS. Textasamkeppnin Fernuflug er eitt þessara verkefna en þar er um að ræða skapandi vettvang fyrir grunnskólanema og lestrarhvetjandi efni fyrir alla landsmenn.









































































































